Vatnsnesvegur (711) um Vesturhópshólaá
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í byggingu 17 m langrar brúar yfir Vesturhópshólaá á Vatnsnesvegi, nýbyggingu vegar á um 1,0 km kafla og endurbyggingu á um 1,2 km löngum kafla milli Vesturhópshóla og Þorfinnsstaða. Einnig er inni í verkinu bygging heimreiða og tenginga.
Áætlaðar
magntölur:
- Fyllingarefni úr námum 15.300 m3
- Fláafleygar úr skeringum 4.400 m3
- Ræsalögn 121 m
- Styrktarlag 15.400 m3
- Burðarlag 3.500 m3
- Malarklæðing 250 m3
- Tvöföld klæðing 13.450 m2
- Vegrið 280 m
- Frágangur fláa 7.800 m2
- Frágangur á námum 17.500 m2
Verkhluti 2 – Brú á Vesturhópshólaá:
- Gröftur 70 m3
- Steyptir staurar, skurður 42 stk.
- Mótafletir 905,1 m2
- Steypustyrktarjárn 39,6 tonn
- Spennt járnalögn 4,5 tonn
- Steypa 323,7 m3
- Vegrið á brú 38 m
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 5. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. júlí 202.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.