Auglýst útboð
Vatnsnesvegur (711) um Tjarnará
Vegagerðin býður hér með út byggingu á 1,6 km löngum vegi við Tjarnará á Vatnsnesi.
Helstu magntölur eru:
- - Efnisvinnsla 1.800 m3
- - Skeringar 42.000 m3
- - Fyllingar og fláafleygar 43.100 m3
- - Styrktarlag 7.800 m3
- - Burðarlag 1.500 m3
- - Tvöföld klæðing 7.620 m2
- - Frágangur fláa 33.000 m2
Verkinu skal að
fullu lokið 1. október 2019.
Útboðsgögnin eru afhent hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 11. mars. 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þriðjudaginn 26. mars 2019 og kl.
14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.