Auglýst útboð

Uppsetning vegriða á Norðursvæði 2022

8.8.2022

Vegagerðin býður hér með út efni og uppsetning á víravegriðum og uppsetningu á
bitavegriðum fyrir Norðursvæði.

Helstu magntölur eru:

- Víravegrið (fláavegrið), efni og uppsetning:          2.716 m

- Bitavegrið, uppsetning:                                              528 m

Verkinu skal lokið 31. desember 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 8. ágúst 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. ágúst 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.