Auglýst útboð

Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá, eftirlit (EES)

18.7.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með  í byggingu nýs Þverárfjallsvegar í Refasveit frá Hringvegi norðan Blönduóss að núverandi Þverárfjallsvegi, um 8,5 km að lengd og nýs Skagastrandarvegar frá nýjum Þverárfjallsvegi að Skagastrandarvegi norðan Höskuldsstaða, um 3,3 km að lengd. Á Skagastrandarveg skal byggja nýja 106 m langa brú á Laxá í Refasveit. Brúin er í þremur höfum, steinsteypt og eftirspennt. Einnig skal byggja nýjar tengingar og heimreiðar, samtals um 4,5 km að lengd.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 1. nóvember 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með sunnudeginum 18. júlí 2021  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. ágúst 2021. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.  Þriðjudaginn 24. ágúst  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.