Auglýst útboð

Þorlákshöfn, viðhaldsdýpkun innsiglingar 2023

3.4.2023

Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í dýpkun innsiglingar í Þorlákshöfn.

Helstu verkþættir eru:

·         Dýpkun í innsiglingu um 34.000 m3.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1.júlí 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 3. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. apríl 2023. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. 

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign