Auglýst útboð

Þorlákshöfn, Svartaskersbryggja, endurbygging þekju og lagna 2023

29.3.2023

Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í verkið endurbyggingu þekju og lagna á Svartaskersbryggju í Þorlákshöfn

Helstu verkþættir eru:

·         Rífa upp og saga malbik.

·         Leggja vatnslagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn.

·         Steypa um rafmagnshús.

·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju og malbik.

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju alls um 2350 m².

·         Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.

·         Malbika þekju um 5000 m².

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 29.   mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. apríl 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.