Auglýst útboð

Þorlákshöfn – Svartaskersbryggja, endurbygging stálþils 2022

21.3.2022

Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í verkið „Þorlákshöfn – Svartaskersbryggja, endurbygging stálþils 2022“. 

Helstu verkþættir eru:

·         Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.

·         Reka niður 146 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ 22-800 og eina einfalda sömu gerðar

·         Steypa 62 akkerisplötur og uppsetning staga.

·         Steypa um 230 m langan kantbita með pollum og setja upp kanttré, stiga og þybbur.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með þriðjudeginum 22. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. apríl 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.