Þjórsárdalsvegur (32), Hallslaut - Fossá
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í styrkingu og klæðingu á Þjórsárdalsveg (32-03), frá Hallslaut að Fossá.
Um er að ræða endurbyggingu Þjórsárdalsvegar (32-02), frá Hallslaut í vestri að Fossá í austri. Verkið felst í fræsingu á núverandi klæðningu, styrkingu og klæða aftur með bundnu slitlagi. Vegkaflinn sem um ræðir er 2,6 km að lengd og að jafnaði 6,5 m breiður.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 320 m3
- Styrktarlag 0/90 1.120 m3
- Burðarlag 0/22 3.000 m3
- Tvöföld klæðing 14.500 m2
- Frágangur fláa 11.450 m2
Verki skal að fullu lokið 26. ágúst 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 1. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. mars 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.