Tálknafjarðarvegur (617) – Endurbygging - Hraðútboð
Vegagerðin óskar eftir tilboðum endurbyggingu vegkafla ásamt gerð grjótvarnar og lagnavinnu á Tálknafjarðarvegi (617-02) um þéttbýlið á Tálknafirði. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Tálknafjarðarhrepps.
Helstu magntölur í verkinu eru:
- - Rif vegyfirborðs 12.200 m2
- - Fyllingar og fláafleygar 8.500 m3
- - Styrktarlag 7.000 m3
- - Burðarlag 1.370 m3
- - Malbik 12.000 m2
- - Steypt gangstétt 700 m2
- - Staðsteyptir kantsteinar 690 m2
- - Regnvatnslagnir 530 m
- - Grjót í rofvörn 6.800 m3
- - Frágangur hliðarsvæða 4.100 m2
Ljúka skal vinnu við rofvörn fyrir 20. desember 2021. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 31. ágúst tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. september 2021.
Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.