Suðursvæði 2023, blettanir með klæðingu
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir á Suðursvæði, blettanir með klæðingu, árið 2023.
Helstu magntölur eru:
Blettun á Suðursvæði með klæðingar: 75.000 m2
Flutningur steinefna: 830 m3
Flutningur bindiefna: 83 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 13. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. mars 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.