Auglýst útboð

Suðurlandsvegur, tvöföldun, Vesturlandsvegur – Bæjarháls - Eftirlit

22.4.2020

Vegagerðin býður hér með út eftirlit með tvöföldun Suðurlandsvegar, frá núverandi vegi rétt sunnan Vesturlandsvegar og suður fyrir Bæjarháls. Tengja skal tvöföldun vegarins við núverandi vegyfirborð í báðum
endum og auk þess færa rampa frá Bæjarhálsi til aðlögunar að tvöfölduðum vegi. Breikka og lengja skal núverandi undirgöng undir Suðurlandsveg við Krókháls og endurgera stíg í gegnum þau.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með fimmtudeginum  22. maí 2020  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 7 maí 2020. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um
nöfn bjóðenda í útboðinu. Föstudaginn 8. maí 2020 verður bjóðendum tilkynnt verðtilboð hæfra bjóðenda.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.