Suðureyrarhöfn, endurbygging Vesturkants 2019
Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í endurbyggingu Vesturkants á Suðureyri.
Útboðið nefnist: Suðureyrarhöfn, endurbygging Vesturkants 2019
Helstu
magntölur:
- · Reka niður 36 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ14-770 10/10 og ganga frá stagbitum og stögum.
- · Steypa 18 akkerisplötur.
- · Steypa um 54,5m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
- · Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 620 m³ og ofan á svæði undir þekju.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 18. nóvember 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudeginum 3. desember 2019.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.