Auglýst útboð
Stór ræsi á Suðurlandi 2019
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í niðursetningu á þrem ræsum á Skeiða- og Hrunamannavegi (30) og einum reiðgöngum á Biskupstungnabraut (35) við Reykholt. Verk þetta var boðið út fyrr á árinu (19-041) en er nú boðið út aftur með fáeinum breytingum.
Helstu magntölur eru:
- - Fláafleygar efni úr skeringum 4.295 m3
- - Ræsalögn 2,2 m 36 m
- - Ræsalögn 2,4 m 48 m
- - Lögn stálplöturæsis 24 m
- - Styrktarlag, óunnið efni 2.300 m3
- - Burðarlag 125 m3
- - Tvöföld klæðing 490 m2
- - Mölburður í reiðstíga 100 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2019
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 1. apríl 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. apríl 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.