Auglýst útboð

Snæfellsbær, sjóvarnir 2023

16.1.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í byggingu sjóvarna við Ólafsbraut og Ennisbraut í Ólafsvík og á Hellnum, heildarlengd um 720 m.

Helstu magntölur:

   Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 8.800 m3

   Upptekt og endurröðun grjóts um 8.700 m3

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 16. janúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. janúar 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.

.