Auglýst útboð

Snæfellsbær, sjóvarnir 2022

27.6.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í byggingu sjóvarna við Ólafsbraut og Ennisbraut í Ólafsvík og á Hellnum, heildarlengd garða um 720 m.

Helstu magntölur:

  • Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 8.800 m3
  • Upptekt og endurröðun grjóts um 8.700 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. janúar 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 27. júní  2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. júlí 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.