Auglýst útboð

Snæfellsbær, sjóvarnir 2021

16.3.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir Snæfellsbæ. Verkið felst í byggingu sjóvarna vestan Gufuskála og við Ólafsbraut í Ólafsvík, heildarlengd um 340 m.

Helstu magntölur:

  • Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.700 m3
  • Upptekt og endurröðun grjóts um 3.500 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. júlí 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 16. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  30. mars 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.