Slipptaka, ýmsar breytingar á m/f RØST
Vegagerðin býður hér með út slipptöku og ýmsar breytingar á m/f RØST.
Útboðsverkefnið lýtur að slipptöku skipsins, koma fyrir nýjum þilfarskrana, færa til lyftibjörgunarbáta, útbúa gámasvæði á þilfari, mála skip að utan auk ýmissa smærri verkefna.
Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 6. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. maí 2023*.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæðir.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign
* Við birtingu auglýsingarinnar var tilboðsfrestur til 25. apríl 2023. Ákveðið hefur verið að lengja tilboðsfrestinn til kl. 14:00 9. maí nk. Aðrir frestir útboðsins lengjast samsvarandi. Síðasti dagur fyrirspurnar er 30. apríl.