Skeiða- og Hrunamannavegur (30), Einholtsvegur – Biskupstungnabraut.
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endur- og nýbyggingu 4,3 km Skeiða- og Hrunamannavegar (30-08), frá Einholtsvegi að Biskupstungnabraut.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 20.735 m3
- Fláafleygar 5.255 m3
- Fyllingar 33.025 m3
- Styrktarlag 25.865 m3
- Burðarlag 8.565 m3
- Ræsi 362 m
- Tvöföld klæðing 41.255 m2
- Frágangur fláa 66.100 m2
- Girðingar 4.800 m
- Vegrið 540 m
Verklok eru 15. júní 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 22. desember 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. janúar 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.