Auglýst útboð

Skaftártunguvegar (208), frá Hrífunesvegi að Giljalandsvegi

8.11.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 3 km kafla Skaftártunguvegar (208-01), frá Hrífunesvegi að Giljalandsvegi

Helstu magntölur eru:

- Skeringar                      5.600 m3

- Lögn stálræsa                 180 m

- Fyllingar                         8.600 m³

- Styrktarlag                    5.500 m³

- Burðarlag 0/22             3.300 m³

- Tvöföld klæðing          19.000 m²

- Frágangur fláa             33.000 m²

 Verklok eru 15. ágúst 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 8. nóvember. 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. nóvember 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.