Auglýst útboð

Seyðisfjörður – Engrobryggja, harðviðarbryggja 2022

30.5.2022

Hafnir Múlaþing óskar eftir tilboðum í verkið „Seyðisfjörður – Engrobryggja, harðviðarbryggja 2022“.

Helstu verkþættir eru:

·         Jarðvinna: gröftur fyrir landvegg, fylling og grjótvörn.

·         Steypa 55m landvegg.

·         Reka 67 bryggjustaura úr Greenheart harðviði.

·         Byggja 560 m² bryggju úr Greenheart harðviði.

·         Uppsetning á 30 stk. DD250 þybbum á bryggju

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. júní 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.