Auglýst útboð

Reykjastrandarvegur (748) Þverárfjallsvegur - Fagranes

12.7.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu Reykjastrandarvegar í Skagafirði, frá Þverárfjallsvegi að Fagranesá. Lengd kafla er 5,5 km.

Helstu magntölur eru:

  • - Netgirðingar 6.450 m    
  • - Fylling úr skeringum og námum 16.150 m3
  • - Fláafleygar úr skeringum og námum 20.550 m3
  • - Ræsalögn 420 m
  • - Styrktarlag, með efnisvinnslu úr bergi, 26.500 m3
  • - Burðarlag, með efnisútvegun, 8.400 m3
  • - Tvöföld klæðing, með efnisútvegun, 36.200 m2
  • - Frágangur fláa 101.900 m2

Verklok eru 1. október 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  12. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. júlí 202. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.