Auglýst útboð

Prentlausnir fyrir Vegagerðina

27.1.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í allan búnað og rekstur/rekstrarvörur fjölnotatækja (prentara/skanna/ljósritara) til notkunar hjá Vegagerðinni í Garðabæ og útibúum hennar í Borgarnesi, Ólafsvík, Búðardal, Patreksfirði, Ísafirði, Hólmavík, Hvammstanga, Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík, Þórshöfn, Vopnafirði, Fellabæ, Reyðarfirði, Höfn, Vík og Selfossi. 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 27.  janúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. febrúar 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.