Oddavegur (266) Oddi – Ártúnsvegur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurmótun 2,8 km Oddavegar (266-01), frá Odda að Ártúnsvegi (2699-01).
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 7.770 m3
- Fyllingar og fláafleygar 7.770 m3
- Burðarlag 4.675 m3
- Tvöföld klæðing 19.880 m2
- Frágangur fláa 37.155 m2
Verklok eru 1. október 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 11. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. maí 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.