Auglýst útboð

Norðausturvegur (85) um Brekknaheiði, Langanesvegur - Vatnadalur, könnun á matsskyldu og hönnun

24.7.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboði í könnun á matsskyldu ásamt for- og verkhönnun fyrir
nýframkvæmd Norðausturvegar (85) um Brekknaheiði, frá Langanesvegi að Vatnadal. Kaflinn er
um 8 km langur og nær frá tengingu við Langanesveg sunnan Þórshafnar að núverandi
slitlagsenda í Vatnadal. Hönnun þriggja minni tenginga er hluti af verkinu en lengd þeirra nemur
um 300 m. Heildarlengd vega er því um 8,3 km. Hönnun vegamóta Norðausturvegar og
Langanesvegar er einnig hluti af verkinu auk hugsanlegra búfjárræsa.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt
í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 25. júlí 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  23. ágúst 2022. 


Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Fimmtudaginn 1. september 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð bjóðenda.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.