Laugarvatnsvegur (37) Þóroddsstaðir - Grafará
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbætur á 4,6 km kafla á Laugarvatnsvegi (37-01) frá Þóroddsstöðum að Grafará. Veturinn 2018-2019 skal vinna við efnisútvegun og breikkun vegarins. Eftir 8. apríl 2019 verður núverandi slitlag fræst upp, vegurinn styrktur og lögð út klæðing.
Helstu magntölur eru:
- - Fyllingar 11.620 m3
- - Fláafleygar 11.490 m3
- - Skeringar 9.070 m3
- - Styrktarlag 8.075 m3
- - Burðarlag 8.265 m3
- - Tvöföld klæðing 36.580 m2
- - Ræsalögn 81 m
- - Frágangur fláa 54.425 m3
- - Þurrfræsing 28.530 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 2019.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 3. september 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. september 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.