Auglýst útboð

Hvalfjarðargöng, rekstur og þjónusta 2023-2025

2.12.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur og þjónustu í Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025. Í aðalatriðum felst verkið í eftirfarandi:

  •     Útkallsþjónustu, þ.e. að bregðast við útköllum vegna bilana eða atvika sem verða í göngunum og bregðast       þarf strax við. 
  •      Umferðarstjórnun þegar göngunum er lokað eða umferð takmörkuð í gegnum þau, t.d. vegna úttekta                og/eða viðhalds.
  •      Þátttöku og aðstoð vegna funda og æfinga viðbragðsaðila. 
  •      Reglubundnu eftirliti og ástandsgreiningum.
  •       Viðhaldsvinnu á búnaði. 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign   frá og með föstudeginum 2. desember 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. janúar 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.