Auglýst útboð

Hvalfjarðargöng (1): Kantlýsing

22.3.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð kantlýsingar í Hvalfjarðargöng. Verkið felur í sér að útvega og setja upp kantljós í Hvalfjarðargöngum ásamt öllum búnaði sem þarf. Kantljósin skulu vera LED ljós sem samanstanda af hvítum ljósdíóðum sem lýsa í sitt hvora áttina. Díóður skulu vera hvítar á lit og aflnotkun hvers ljós skal ekki vera meira en 2 W. Ljósstyrkleikinn skal vera yfir 25 cd. Sýnileiki ljósanna skal vera yfir 1000 m.

Kantljósunum er komið fyrir með 25 m millibili  ofan á steyptri vegöxl  rétt fyrir ofan kantsteininn, það er ca. 20-25cm frá frambrún kantsteins . Fræsa þarf rauf í steypta öxlina fyrir rafstreng til að fæða ljósin. Spennugjöfum fyrir lýsinguna er komið fyrir í 4 tæknirýmum. Vinna þarf verkið á nóttunni og göngunum verður ekki lokað fyrri umferð á meðan á því stendur.

Helstu magntölur verksins eru: 

·         Kantljós                                                                                 506 stk.

·         Fræsing/sögun fyrir streng                                                 11,5 km

·         Kjarnaborun fyrir kantljós                                                     500 stk.

Verki skal vinna a staðnum  haustið 2020 frá 1 september til 1. nóvember og skal  lokið að fullu 1. nóvember 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 23. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. apríl 2020. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.