Auglýst útboð

Hrunavegur (344), Skeiða- og Hrunamannavegur að Kaldbaksvegi

10.5.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 3,6 km kafla Hrunavegur (344) frá Skeiða- og Hrunamannavegi.

Helstu magntölur eru:

- Skeringar                        10.000 m³

- Lögn stálræsa                36m

- Fyllingar                         5.600m³

- Styrktarlag 0/90              11.0000m³

- Burðarlag 0/22                4.300m³

- Tvöföld klæðing              26.700m²

- Frágangur fláa                36.700m²

Verklok eru 1. október 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 10. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. maí 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.