Auglýst útboð

Hringvegur um Hvalnesskriður, hrunvarnir 2020

28.4.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hrunvarnir í Hvalnesskriðum, norðan Hvalness í Lóni. Um er að ræða uppsetningu á um 345 m af stálþili, hreinsun vegrása og gerð skeringa. 
Helstu magntölur eru:
- Skeringar með vegi     37.780 m3
- Fylling                             1.620 m3
- Uppsetning á stálþili       345 m
Verkið skal að fullu lokið fyrir 1. október 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 29. apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 14. maí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.