Auglýst útboð

Hringvegur (1) um Hornafjörð. Eftirlit og ráðgjöf

27.7.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Hringvegur (1) um Hornafjörð.  Verkið felur í sér styttingu Hringvegarins um 12 km með gerð 19 km langs vegar er kemur til að liggja yfir norðanverðan Hornafjörð. Innifalið í verkinu er smíði fjögurra brúa.   

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í desember 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með miðvikudeginum 27. júlí 2022  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. ágúst í 2022. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 6. september  2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.