Auglýst útboð

Hringvegur (1) um Heiðasporð

5.7.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu á hringvegi um Heiðasporð. Um er að ræða endurbyggingu á 1,8 km kafla á hringvegi um Heiðasporð þar sem töluverðar breytingar verða á veglínu

Helstu magntölur eru:

 -       Bergskeringar                        77.350 m3

-       Fylling úr skeringum              81.550 m3

-       Ræsalögn                                     130 m

-       Endafrágangur ræsa                       8 stk.

-       Styrktarlag                             12.550 m3

-       Burðarlag                                  3.650 m3

-       Klæðing, tvöföld                    16.000 m2

 Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 6. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.