Auglýst útboð

Hringvegur (1): Suðurlandsvegur, Bæjarháls - Hólmsá, hönnun

1.6.2022

Vegagerðin, óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun fyrir tvöföldun Hringvegar (1), Suðurlandsvegar frá Bæjarhálsi í Reykjavík að Hólmsá á mörkum Mosfellsbæjar og Kópavogs.  Áætlað er að skipta verkinu upp í 5 áfanga en einungis skal for og verkhanna áfanga 1. og 2 (valkost 2). Um er að ræða tvöföldun á um það bil 5,1 km löngum vegarkafla. þá skal hanna hliðarvegi (Vegbrekkur, Hafravatnsvegur) og tengingar (Heiðmörk) ásamt hönnun á heilstæðu stígakerfi fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur. Á vegkaflanum eru 3 vegamót við stofn- og tengivegi ásamt tengingum inn á bílastæði og bensínstöð, þá skal hanna nýtt bílastæði austan við bensínstöð. 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 1. júní 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  19. júlí  2022. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Föstudaginn22. júlí 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.