Auglýst útboð

Hringvegur (1), Hörgsá - Breiðbalakvísl, sementsfestun

14.6.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í þurrfræsingu og sementsfestun á um 2,4 km á Hringveginum (1-a4) í Skaftárhreppi rétt norðaustan við Kirkjubæjarklaustur. Kaflinn nær frá brú yfir Hörgsá að brú yfir Breiðbalakvísl.

Helstu magntölur eru:

·         - Burðarlag 0/22                                                             300 m3

·         - Sementsfestun                                                        15.642 m2

·         - Klæðing                                                                     16.566 m2

Útboðsgögnin verða afhent hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með föstudeginum 14. júní 2019.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn . júlí 2019  og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.