Auglýst útboð

Hólmavík – Þekja og lagnir 2020

30.11.2020

Strandabyggð óskar eftir tilboðum í neðangreint verk.

Helstu verkþættir:

·         Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn.

·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu þekju.

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 813 m².

·         Koma fyrir rafmagnskassa og vatnsbrunn á bryggjunni.

Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 30. nóvember 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 15. desember 2020.

Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.