Auglýst útboð
Hjólfarafyllingar og axlaviðgerðir á Suðursvæði og Austursvæði 2019
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hjólfarafyllingar og axlaviðgerðir á Suðursvæði og Austursvæði 2019.
Helstu magntölur eru:
- Heflun axla 5,3 km
- Hjólfarafylling með flotbiki 68.900 m2
- Afrétting með flotbiki, axlir og sigkaflar 7.950 m2
- Afrétting með kaldbiki, axlir og sigkaflar 5.400 m2
Útboðsgögnin eru afhent hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirð, Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 30. apríl 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. maí 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.