Auglýst útboð
Hringvegur (1) hringtorg við Landvegamót
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð hringtorgs á mótum Hringvegar (1), Landvegar (26) og Ásvegar (275), auk minniháttar breytinga allra aðliggjandi vega.
Helstu magntölur eru:
- Fræsing 7.250 m2
- Styrktarlag 1.531 m3
- Burðarlag 1.869 m3
- Tvöfalt malbik 7.363 m2
- Kantsteinar 295 m
- Hellulögn 361 m2
- Umferðarmerki 41 stk.
- Götulýsing, skurðgröftur og strengur 1.000 m
- Ljósastaurar 27 stk.
- Málun 2.942 m
Verklok eru 1. október 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 25. maí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. júní 2020.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.