Auglýst útboð
Hafravatnsvegar (431), frá Mosfellsbæ að gatnamótum Úlfarsfellsvegar
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbætur á 1,7 km kafla Hafravatnsvegar (431-01,) frá Mosfellsbæ að gatnamótum Úlfarsfellsvegar.
Helstu magntölur eru:
- - Skeringar og fláafleygar 1.380 m3
- - Styrktarlag 2.195 m3
- - Burðarlag 2.040 m3
- - Tvöföld klæðing 12.205 m2
- - Ræsalögn 66 m
- - Frágangur fláa 7.480 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2019.
Útboðsgögn verða afhent á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 20. maí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.