Auglýst útboð

Hafnarfjarðarvegur (40), Vífilsstaðavegur (að Litlatúni) – Lyngás

16.3.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbætur Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í Garðabæ.

Verkið felst í:

Sumarið 2020

  • ·         Gerð hringtorgs á Vífilsstaðaveg við Litlatún
  • ·         Breikkun og endurbætur á Vífilsstaðavegi milli Litlatúns og Hafnarfjarðarvegar
  • ·         Breikkun og endurbótum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar
  • ·         Gerð göngustíga og allur frágangur yfirborðs
  • ·         Öll nauðsynleg lagnavinna fyrir veitufyrirtækin

Sumarið 2021

  • ·         Breikkun og endurbætur á Hafnarfjarðarvegi milli Vífilsstaðavegar og Lyngás
  • ·         Gerð undirganga undir Hafnarfjarðarveg við Hraunsholtslæk
  • ·         Breikkun og endurbótum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Lyngás
  • ·         Gerð göngustíga og allur frágangur yfirborðs
  • ·         Öll nauðsynleg lagnavinna fyrir veitufyrirtækin 

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Garðabæjar og veitufyrirtækja.

Helstu magntölur eru:

Vegagerð – Hafnarfjarðarvegur og Vífilsstaðavegur að Litlatúni

  • Fyllingarefni og burðarlagsefni úr námum       9.300 m³
  • Stungumalbik                                                    36.140 m²
  • Eyjur með steinlögðu yfirborði                          1 .690 m²   
  • Malbikaðir göngustígar                                      2.500 m²

Undirgöng undir Hafnarfjarðarveg og stoðveggur við Litlatún

  • Fylling við steypt mannvirki                              3.500 m³
  • Forsteyptar einingar                                                32 stk.
  • Járnalögn, slakbending                                  22.900 kg
  • Steypa                                                                    280 m³

Veitufyrirtæki, jarðvinna fyrir sameiginlega skurði

  • Skurðir fyrir veitulagnir                                      3.270 m
  • Losun á klöpp í skurðum                                        50 m³

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 16. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 15. apríl 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.