Auglýst útboð
Grindavíkurvegur (43), framúrakstursreinar
Vegagerðin býður hér með út gerð framúrakstursreina á Grindavíkurvegi, breiddaraukningu í vegamótum við Seltjörn, lengingu fléttureina í vegamótum við Norðurljósaveg ásamt gerð hliðartenginga og stíga.
Helstu magntölur eru:
- Rif malbiks 5.600 m2
- Umframefni úr skeringum 14.360 m3
- Fyllingar 1.492 m3
- Fláafleygar 8.243 m3
- Styrktarlag 18.821 m3
- Burðarlag 6.305 m3
- Malbik 72.850 m2
- Gangstígar 584 m2
- Vegrið 6.985 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1.nóvember 2019.
Útboðsgögn verða afhent á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 28. maí 2019.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12.júní 2019 og kl. 14:15 sama dag verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.