Auglýst útboð

Grenivík, sjóvarnir 2021

8.2.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir við Grenivík. Verkið felst í endurröðun og lengingu á núverandi sjóvörn, heildarlengd um 200 m. 

Helstu magntölur:

  • Lagfæring eldri sjóvarnar, upptekt og endurröðun grjóts um 400 m3 á 50 m kafla.
  • Lenging sjóvarnar um 150 m, grjót úr námu alls um 2250 m³

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. ágúst 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 8. febrúar 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. febrúar 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.