Grafningsvegur neðri (350), Hlíðará – Grafningsvegur efri
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í að ljúka uppbyggingu og útlögn klæðingar á Grafningsveg (nr. 350-01), frá Hlíðará að Grafningsvegi efri.
Helstu magntölur eru:
- Fláafleygar 10.255 m3
- Fyllingar 1.755 m3
- Styrktarlag 0/90 4.320 m2
- Burðarlag 0/22 3.430 m3
- Tvöföld klæðing 25.865 m2
Verklok eru 1. september 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 8. apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. apríl 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.