Auglýst útboð

Bíldudalshöfn: Endurbygging og lenging Hafskipabryggju 2019

28.10.2019

Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í endurbygging og lenging Hafskipabryggju.

Útboðið nefnist:

Bíldudalshöfn: Endurbygging og lenging Hafskipabryggju 2019

Helstu magntölur:

·         Upptekt á grjóti, um 1.400 m³.

·         Reka niður 117 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ24-700, AZ28-700 og AZ13-700.

·         Ganga frá stagbita og stögum.

·         Steypa 25 akkerisplötur.

·         Steypa um 164 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

·         Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 12.600 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  28 október 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudeginum 12. nóvember 2019.  

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.