Auglýst útboð

Efnisvinnsla á Norðursvæði vesturhluti 2020 (EES útboð)

27.1.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í malarvinnslu á Norðursvæði vesturhluti 2020, malarslitlag (0/16).
Helstu magntölur á ári eru:
   Efnisvinnsla í 6 námum á Norðvesturlandi:   27.000 m3
Verki skal að fullu lokið 1. október 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  27. janúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. mars 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.