Auglýst útboð

Efnisvinnsla á Norðursvæði 2022

16.3.2022

Vegagerðin býður hér með út efnisvinnslu á malarslitlagsefni 0/16 í 5 námum og efni af stærðinni 0/22 og 0/45 í einni námu á Norðursvæði 2022, alls um 36.000 m3.

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. nóvember 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með þriðjudeginum 15. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. apríl 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.