Auglýst útboð

Drangsnes, grjótvörn við höfnina 2021

24.8.2021

Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps óskar eftir tilboðum í grjótvörn við steinbryggju á Drangsneshöfn.

Helstu verkþættir eru:

·         Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.800 m3

Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 1. desember 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 24. ágúst 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  9. september 2021. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.