Auglýst útboð

Dalvíkurbyggð - sjóvarnir 2020

31.5.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvörn í Dalvíkurbyggð. Annars vegar um 100 m kafli á Árskógssandi og hinsvegar um 140 m kafli á Dalvík.

Helstu magntölur:

   Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.300 m3

   Endurröðun grjóts um 550 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 1. júní   2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. júní 2020. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.