Auglýst útboð
Bústaðavegur (418), breytingar á aksturs-, hjóla- og gönguleiðum við Kringlumýrarbraut
Vegagerðin býður hér með út lagfæringar á brú yfir Kringlumýrarbraut, lengingu rampa og gerð göngu og hjólastíga í nágrenninu ásamt tilheyrandi jarðvinnu og breytingu á umferðarljósum.
Helstu magntölur:
- Upprif fastra yfirborðsefna : 2.000 m2
- Losun á klöpp : 410 m3
- Malbik: 1.365 m2
- Kantsteinar 685 m
- Þökulögn 750 m2
- Steypu- og steinlögn 600 m2
- Færsla ljósastaura 5 stk.
Verki skal að fullu lokið 1. október 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent frá miðvikudeginum 9. júní 2021 í rafræna útboðskerfinu TendSign og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.