Auglýst útboð

Búrfellsvegur (351), Klausturhólar - Búrfell

15.6.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 4,25 km kafla Búrfellsvegar (351), frá Klausturhólum að Búrfelli

Helstu magntölur eru:

- Fyllingarefni úr námum   9.800 m³

- Skeringar                          5.000  m³

- Styrktarlag 0/63              7.900  m³

- Burðarlag 0/22                 6.000  m³

- Steinefni 8/16                      770  m³

- Tvöföld klæðing               25.500m²

- Frágangur fláa                 36.000m²

Verklok eru 15. júní 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 16. júní 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. júlí 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.