Auglýst útboð

Bolungarvíkurhöfn – Brjóturinn, endurbygging stálþils 2019

24.5.2019

Hafnarsjóður Bolungarvíkur óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.

Helstu verkþættir eru:

·         Prufurekstur, sprengd eða rippuð rás fyrir þil ef þörf reynist á.

·         Rekstur 78 stálþilsplatna, steypa akkerisplötur, uppsetning staga og festinga og fylling innan við þil.

·         Taka upp fríholt, brjóta og fjarlægja kant með pollum og festihringjum alls um 97 m.

·         Brjóta og fjarlægja steypta þekju. Aftengja og taka upp raf-, og vatnslagnir.

·         Leggja vatnslagnir í bryggjuna og ídráttarrör fyrir rafstrengi

·         Steypa kantbita með pollum, uppsetningu á stigum og fríholtum.

·         Fylla í skarð milli gamla stálþils og grjótgarðs norðaustan við stálþilið.

·         Taka upp núverandi grjótvörn og endurraða grjótvörn utan á nýja fyllinguna.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2019.

Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. maí 2019.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.