Auglýst útboð

Bíldudalshöfn – Steypt þekja 2022

21.3.2022

Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í verkið „Bíldudalshöfn – Steypt þekja 2022“.

Helstu verkþættir eru:

·         Grófjafna yfirborð, þjappa og fínjafna undir steypu.

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2390 m2.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 21. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. apríl 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.